EFNI
Maíssterkja
RÚMMÁL
30-35ltr

Maíspokar 30-35ltr.

23.870 kr.

Vörunr: H5206
Maíspokar brotna niður á örfáum vikum

Selst í kössum með 35stk.

Þessir fást í flestum verslunum ætli fólk að kaupa staka rúllu.

Breidd: 60 cm
Lengd: 73 cm

Maíspokinn er 20 míkron að þykkt. Til að ná fram lengri geymslutíma fyrir notkun er best að geyma pokann fjarri ljósi og hita. Pokinn er í fullu gæðum fyrstu 6 mánuðina.

Meira um maíspokana:
Pokarnir sem Íslenska Gámafélagið kaupir frá Ceplast innihalda ekki erfðabreyttan maís. Fyrirtækið sem framleiðir hrávöruna, MATER-BI sem notað er í maísburðarpokana notast ekki við erfðabreyttan maís. Kornið sem notað er til framleiðslunnar er ræktað í Evrópu í samræmi við þá staðla sem þar gilda og er ekki erfðabreytt. Þá er notuð matarolía við framleiðsluna sem einnig er unnin úr óerfðabreyttu hráefni

Samkvæmt skýrslu frá framleiðanda þá þarf um 0,03 hektara lands af maís og 0,14 hektara lands af jurtaolíu til að framleiða 1 tonn af maíspokum sem gera ca 100.000 innkaupapoka. Til að setja þetta í samhengi þá getur þurft um 4 hektara lands til að framleiða 1 tonn af nautakjöti. Það er því ekki mikið landsvæði sem þarf til framleiðslunnar. Maís er ekki eina jurtin sem notuð er í framleiðsluna því einnig er hægt að nota mjölmiklar kartöflur, þistil ofl. Þessi atriði skipta máli í sambandi við það hvort framleiðslan er í samkeppni við framleiðslu á mat handa hungruðum heimi en svo er ekki í þessu tilfelli. Á það má svo benda að skortur á landssvæðum til ræktunar er minna vandamál en sú staðreynd að 30% af framleiddum matvælum er hent árlega

Efni Maíssterkja
Rúmmál 30-35ltr
Aftur í vefverslun

Aðrar vörur

1.562 kr.
heimilispokarf3flokk
484 kr.
fjolnota-poki
26.639 kr.
140ltr-maispoki
15.847 kr.
kassi-af-þykkari-holdupokanum