EFNI
Maíssterkja
RÚMMÁL
80ltr

Maíspokar 80 ltr.

23.430 kr.

Vnr: H5209
Maíspokar brotna niður á örfáum vikum.

Selst í kössum með 22stk.

20stk. á rúllu

Breidd: 70 cm
Lengd: 80 cm

Til að ná fram lengri geymslutíma fyrir notkun er best að geyma pokann fjarri ljósi og hita. Pokinn er í fullu gæðum fyrstu 6 mánuðina.

 

Meira um maíspoka:
Pokarnir sem Íslenska gámafélagið kaupir frá Ceplast innihalda ekki erfðabreyttan maís. Fyrirtækið sem framleiðir hrávöruna, MATER-BI sem notað er í maíspokana notast ekki við erfðabreyttan maís. Kornið sem notað er til framleiðslunnar er ræktað í Evrópu í samræmi við þá staðla sem þar gilda og er ekki erfðabreytt. Þá er notuð matarolía við framleiðsluna sem einnig er unnin úr óerfðabreyttu hráefni. Hér er hlekkur á heimasíðu Novamont sem framleiðir og hefur einkaleyfi á þessu hráefni og lýsir enn frekar maíspokanum og hráefninu MATER-BI og þeim umhverfiskröfum sem þeir gera til vörunnar. Jafnframt er annar hlekkur á þær vottanir sem fyrirtækið uppfyllir.

Samkvæmt skýrslu frá framleiðanda þarf um 0,03 hektara lands af maís og 0,14 hektara lands af jurtaolíu til að framleiða 1 tonn af maíspokum sem gera ca 100.000 innkaupapoka. Til að setja þetta í samhengi þá getur þurft um 4 hektara lands til að framleiða 1 tonn af nautakjöti. Það er því ekki mikið landsvæði sem þarf til framleiðslunnar. Maís er ekki eina jurtin sem notuð er í framleiðsluna því einnig er hægt að nota mjölmiklar kartöflur, þistil ofl. Þessi atriði skipta máli í sambandi við það hvort framleiðslan er í samkeppni við framleiðslu á mat handa hungruðum heimi en svo er ekki í þessu tilfelli. Á það má svo benda að skortur á landssvæðum til ræktunar er minna vandamál en sú staðreynd að 30% af framleiddum matvælum er hent árlega

Efni Maíssterkja
Rúmmál 80ltr
Aftur í vefverslun

Aðrar vörur

1.562 kr.
heimilispokarf3flokk
484 kr.
fjolnota-poki
26.639 kr.
140ltr-maispoki
15.847 kr.
kassi-af-þykkari-holdupokanum