Endurvinnsla

Vistvæn skref með endurvinnslu frauðplasts

Þann 28.3.19 undirrituðu HB Grandi og Norðanfiskur, Íslenska Gámafélagið ásamt Samskipum yfirlýsingu um endurvinnslu og útflutning frauðplasts.

Verkefnið byggir á frauðpressuvél sem staðsett er í Kistunni, sorpflokkunarstöð HB Granda á Akranesi, en félagið rekur sínar eigin sorpflokkunarstöðvar á öllum þremur starfsstöðum félagsins, í Reykjavík, á Akranesi og Vopnafirði. Pressuvélin minnkar ummál fiskikassanna um 95% og með því gefst tækifæri til þess að flytja plastið til endurvinnslu erlendis.

Á umhverfissýningu í Munchen síðsta vor komst HB Grandi, ásamt Íslenska gámafélaginu, í kynni við kínverskt fyrirtæki sem hafði áhuga á því að kaupa allt frauðplast sem til félli í starfsemi félagsins. Með samstarfi HB Granda, Norðanfisks, Íslenska gámafélagsins og Samskipa verður fluttur út í dag fyrsti gámurinn með 7 tonnum af pressuðu frauðplasti, til Malasíu, þar sem efnið verður notað til að framleiða meðal annars mynda- og speglaramma.

Með þessu verkefni er lagður grunnur að raunhæfri lausn til að endurnýta úrgang og skapa verðmæti. Markmið allra þriggja fyrirtækjanna er að vera leiðandi í umhverfismálum.

Markmið Íslenska Gámafélagsins er að vera leiðandi á sviði umhverfismála í sorphirðu, endurvinnslu og endurnýtingu. Félagið býður snjalla hugbúnaðartæknilausn sem auðveldar fyrirtækjum og stofnunum að umhverfisvæða og rafvæða í rauntíma allar skráningar sorps og endurvinnslu hráefna.

Þetta er eitt af fjölmörgum verkefnum sem hafa verið í gangi hjá HB Granda sem snúa að umhverfismálum. Önnur samfélagsskýrsla HB Granda verður gefin út 29.mars þar sem fjallað er um útflutning á frauðplasti og fjölmörg önnur umhverfis og samfélagstengd verkefni. Að mörgu er að hyggja í þessum efnum og mikilvægt að vera vakandi fyrir áhugaverðum tækifærum sem geta dregið úr kolefnisfótspori fyrirtækja.

Samskip hafa markað skýra stefnu í umhverfismálum, ekki aðeins í samræmi við samfélagslega ábyrga starfshætti félagsins heldur gengur viðskiptamódel félagsins enn lengra en kröfur samfélagsins gera.

Tengdar greinar

Hvað verður um pappír og pappa? (myndband)

Í meðfylgjandi myndbandi sést ferli frá innsöfnun pappírs og pappa að útflutningi til móttökuaðila erlendis.

Tilkynning vegna starfa okkar við sorphirðu á Álftanesi

Vegna þeirra umræðu sem hefur skapast vegna starfa okkar við sorphirðu frá heimilum á Álftanesi…

Tilkynning um gjaldskrárbreytingu á landsbyggðinni

Gjaldskrárbreytingar á hráefni og þjónustu.