EFNI
Stál

Spilliefnagámar

HAMG-Spill-10ft

HAMG-Spill-20ft

Spilliefnagámar henta vel fyrir söfnun spilliefna, raftækja og sóttmengaðs úrgangs. Þeir eru fáanlegir í tveimur stærðum, 10 og 20 feta. Þeir eru með grindarbotn sem grípur vökva ef leki verður úr ílátum. Krani er á báðum hliðum til að losa vökva og góð loftræsting er í gámunum.

Gámarnir eru framleiddir af pólska fyrirtækinu AMG sem sérhæfir sig í stálgámum og stálmannvirkjum og starfar samkvæmt alþjóðlegum gæðastöðlum, meðal annars ISO 9001 og ISO 14001. Í framleiðslunni er lögð sérstök áhersla á gæði, endingu, umhverfisvænar lausnir og sjálfbærni.

Með spilliefnagámnum fá fyrirtæki og stofnanir áreiðanlega lausn til að safna og geyma hættuleg efni á öruggan hátt þar til þau fara í viðeigandi meðhöndlun eða endurvinnslu.

2ja ára ábyrgð er á öllum gámum frá AMG.

  • 10ft gámur: Hæð 2,23m - breidd 2,9m - dýpt 2,02m
  • 20ft gámur: Hæð 2,73m - breidd 6,05 - dýpt 2,55m
Efni Stál
Aftur í vefverslun

Aðrar vörur

Færanlegar húseiningar

Vönduð færanleg 20 ft gámahús sem henta til ýmissa nota.

Geymslugámur

10 feta gámur sem hentar vel sem köld geymsla.

Opnir krókgámar

Opnir krókgámar fást í stærðunum 10m³ til 35m³.

Pressugámar

Pressugámar henta vel þar sem mikið fellur til af úrgangi. Stærð 18m³-20m³.