Fréttir

Tilkynning vegna Covid-19 faraldursins

Vegna Covid-19 faraldursins vill Íslenska gámafélagið koma eftirfarandi tilmælum á framfæri:

  • Almennt sorp þarf að vera í vel lokuðum pokum og ekki má yfirfylla tunnur.
  • Smitaðir einstaklingar þurfa sérstaklega að gæta þess að snýtibréf fari í vel lokuðum pokum í Gráu tunnuna fyrir almennt sorp.
  • Umfram sorpi sem ekki kemst í tunnur, þurfa íbúar að skila á gámasvæði.
  • Flokkun á endurvinnsluhráefni helst óbreytt enn sem komið er.

Þessi tilmæli eru til þess að koma í veg fyrir að starfsfólk okkar þurfi að snerta sorpið og til að draga úr smithættu.

Nánari upplýsingar um Covid-19 faraldurinn má nálgast á www.covid.is

Tengdar greinar

Yfirlýsing vegna myndbands sem er í dreifingu á samfélagsmiðlum

Í myndbandi sem gengur á samfélagsmiðlum af sorphirðu Íslenska gámafélagsins í Kópavogi sést hvar sótt…

Tilkynning – Götulokanir vegna leiðtogafundar Evrópuráðs

Viðskiptavinir ahugið! Breytingar á losunum vegna leiðtogafundar Evrópuráðsins í Hörpu 16. og 17.maí n.k.