Spilliefnagámar
HAMG-Spill-10ft
HAMG-Spill-20ft
Spilliefnagámar henta vel fyrir söfnun spilliefna, raftækja og sóttmengaðs úrgangs. Þeir eru fáanlegir í tveimur stærðum, 10 og 20 feta. Þeir eru með grindarbotn sem grípur vökva ef leki verður úr ílátum. Krani er á báðum hliðum til að losa vökva og góð loftræsting er í gámunum.
Gámarnir eru framleiddir af pólska fyrirtækinu AMG sem sérhæfir sig í stálgámum og stálmannvirkjum og starfar samkvæmt alþjóðlegum gæðastöðlum, meðal annars ISO 9001 og ISO 14001. Í framleiðslunni er lögð sérstök áhersla á gæði, endingu, umhverfisvænar lausnir og sjálfbærni.
Með spilliefnagámnum fá fyrirtæki og stofnanir áreiðanlega lausn til að safna og geyma hættuleg efni á öruggan hátt þar til þau fara í viðeigandi meðhöndlun eða endurvinnslu.
2ja ára ábyrgð er á öllum gámum frá AMG.
- 10ft gámur: Hæð 2,23m - breidd 2,9m - dýpt 2,02m
- 20ft gámur: Hæð 2,73m - breidd 6,05 - dýpt 2,55m